Elddropar

eftir Einar Svansson

Elddropar er önnur ljóðabók Einars Svanssonar en fyrri bók hans – Undir stjörnum og sól, hlaut góðar viðtökur. Í Elddropum má segja að yrkisefnin séu klassísk, lífsvilji og dauði, ást og fortíðarfíkn, heimspekilegar hugleiðingar um lífið og tilveruna.

Einar Svansson er lektor í Háskólanum á Bifröst. Hann hefur birt frumsamin og þýdd ljóð í blöðum og tímaritum og gefið út tvær ljóðabækur: Undir stjörnum og sól, 1991 og Elddropar, 2015.

Upplýsingar

  • Fjöldi síðna: 67 síður
  • Útgefandi: Griffla – forlag (nóvember 2015)
  • Gerð: Kilja
  • Tungumál: Íslenska
  • ISBN: 978-9979-72-912-9

© Griffla Forlag |  2015–2024